Skip to content

FabLabIsafjordur/ondsel-kennsla

Folders and files

NameName
Last commit message
Last commit date

Latest commit

 

History

23 Commits
 
 
 
 
 
 

Repository files navigation

Ondsel kennsla

Teikning

Á Fab Lab Ísland fundi teiknuðum við LEGO kubb saman. Myndband:

Myndband með leiðbeiningum

Við stoppuðum hér, til þess að allir fengju að spreyta sig á að klára módelið:

LEGO flip

Eins og LEGO heimildarmyndin sýnir (vinsælt myndband á mínu heimili) þá voru fyrstu LEGO kubbarnir svona, en þeir héldust ekki nógu vel saman. Galdurinn, og kjarninn í LEGO einkaleyfinu, er rörin sem eru undir kubbnum. Ég vil að þið teiknið eitt rör í Part workbench og farið síðan í Draft workbench og gerið Array með 12 mm bili á milli röra.

Hér eru málin á rörinu:

LEGO rör mál

Hér er ég búinn að þrívíddarprenta eitt stykki:

Þrívíddarprentaður kubbur

Hvernig teiknar maður eiginlega rörin?

  • Ein leið er að fara í Sketcher workbench og gera nýja skissu á yfirborðið inni í kubbnum (eða á XY planið). Teikna tvo hringi með sömu miðju og málsetja. Loka síðan skissunni, fara í Part workbench og gera extrude. Hversu langt? Hæð kubbsins mínus veggþykktin (14,4mm - 1,8mm).
  • Önnur leið er að búa til Tube með sömu aðferð og við bjuggum til Cube í byrjun (gulu grunnformin í Part workbench). Þegar þið eruð komin með rör á skjáinn þá getið þið valið Tube í trénu vinstra megin og stillt stærð og staðsetningu þess í Property View. Munið þið eftir Property View?

Góðar stillingar í Ondsel

Þrívíddarprentun

Ef þú ætlar að þrívíddarprenta kubbinn þá þarftu að sameina allt í einn hlut og breyta honum í STL.

  1. Þú velur marga hluti í trénu með því að halda inni Ctrl. Þetta ættu að vera tvö Array og eitt Cut. Veldu kubbinn fyrst (af því að allir hinir hlutirnir eru í snertingu við hann).
  2. Síðan gerirðu Union í Part workbench (stundum kallað Part_Fuse).
  3. Að lokum velurðu kubbinn og ferð í File -> Export.
  4. Þá kemur upp gluggi til að gefa exportaða módelinu nafn. Undir nafninu skaltu velja STL.

Ég mæli með því að sleppa stuðningsefni í prentuninni. Ég notaði 80% infill.

About

Teiknum LEGO kubb í Ondsel ES

Resources

License

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published